lkingarinnar Gorgeous Female Gorgeous Gorgeous " href="http://www.deutsche.datinggorgeousbarefemalepows.com/feed//" />
2. kafli Stjórnskipulag
og meginreg
lur
2.01 Landsfundur Samfylkingarinnar er æðsta vald í þeim málefnum sem varða stjórn hennar á landsvísu, stefnumál og samræmt stjórnmálastarf. Landsfundur markar stefnu hennar og setur henni lög.
2.02 Flokksstjórn fer á milli landsfunda með það vald sem ella er í höndum landsfundar með þeim takmörkunum sem lög þessi geyma.
2.03 Stjórn Samfylkingarinnar skipa sjö menn: formaður flokksins, sem jafnframt er formaður stjórnar, varaformaður, ritari, gjaldkeri, formaður þingflokks, formaður sveitarstjórnarráðs og formaður framkvæmdastjórnar. Stjórnin ber höfuðábyrgð á stjórnmálastarfi flokksins og stuðlar að stefnumótunar- og málefnavinnu sem fram fari á breiðum grundvelli í sjálfstæðum málefnahópum, starfsnefndum og ráðum á vegum flokksins. Fundargerðir stjórnar skulu lagðar fram á fundum framkvæmdastjórnar. Stjórn flokksins á sjálfkrafa sæti í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar, á fundum þingflokks hennar og sveitarstjórnarráði.
2.04 Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar skipa stjórnin skv. gr. 2.03, 6 aðalfulltrúar og 6 varafulltrúar sem kosnir eru sérstakri kosningu á landsfundi. Framkvæmdastjórnin stýrir málefnum flokksins í umboði landsfundar og flokksstjórnar, sbr. 8. kafla.
2.05 Flokksstarf Samfylkingarinnar byggir á sjálfstæðum aðildarfélögum. Aðildarfélög geta t.d. verið svæðisfélög, félög bundin tilteknum viðfangsefnum stjórnmálanna og stjórnmálafélög ungs fólks eða aldraðra.
2.06 Aðildarfélög Samfylkingarinnar í hverju kjördæmi landsins mynda kjördæmisráð sem fer með framboðsmál Samfylkingarinnar við kosningar til Alþingis.
2.07 Aðildarfélög Samfylkingarinnar í hverju sveitarfélagi landsins mynda fulltrúaráð sem fer með framboðsmál Samfylkingarinnar við kosningar til sveitarstjórna.
2.08 Kjördæmis- og fulltrúaráð aðildarfélaganna eru sjálfstæð um eigin málefni sé ekki á annan veg mælt fyrir um í lögum þessum.
2.09 Skrifstofa Samfylkingarinnar heldur félagaskrá fyrir flokkinn og öll aðildarfélög hans. Hún sér um að færa fólk milli aðildarfélaga í samræmi við búferlaflutninga og tilkynna stjórnum aðildarfélaga um það. Óheimilt er að láta utanaðkomandi aðilum í té félagaskrár aðildarfélaga eða annast áritanir úr félagatali fyrir aðra.
2.10 Í öllum stofnunum flokksins, sem kosið er til, skal hvort kyn eiga rétt til a.m.k. 40% aðalfulltrúa og 40%varafulltrúa, svo fremi að nægilega margir séu í framboði. Ef færri flokksmenn en 40% af hvoru kyni eru í framboði teljast þeir sjálfkjörnir. Við skipan á framboðslista skal stefnt að því að hlutfall kvenna og karla verði sem jafnast. Hið sama á við, þegar skipað er í ráðherrastörf á vegum flokksins.
2.11 Einfaldur meirihluti skal ráða úrslitum í sérhverju máli innan Samfylkingarinnar, nema annað sé ákveðið í lögum þessum. Að jafnaði skulu allar kosningar vera leynilegar og ávallt ef þess er óskað.
2.12 Við val fulltrúa í ráð og nefndir utan Samfylkingarinnar, hvort heldur á Alþingi eða í sveitarstjórnum, skal að því stefnt, að fulltrúar hennar gegni ekki sömu trúnaðarstörfum lengur en átta ár í röð.
3.01 Stjórnmálafélög sem hlíta vilja grundvallarstefnuskrá Samfylkingarinnar, undirgangast lög hennar og hafa a.m.k. 10 fullgilda félaga eiga rétt á aðild að Samfylkingunni.
3.02 Ef félag óskar eftir aðild, getur flokksstjórnin veitt því viðtöku til næsta landsfundar með sömu réttindum og aðildarfélög þau hafa, sem landsfundur hefur samþykkt en á næsta landsfundi skal lagður fullnaðarúrskurður á það mál. Umsókn félags um inngöngu skal fylgja afrit af lögum félagsins.
3.03 Félög sem fengið hafa aðild að Samfylkingunni skulu leitast við að kenna sig við Samfylkinguna í heiti sínu.
3.04 Hvert aðildarfélag hefur fullt frelsi um sín innri mál, svo fremi að ekki brjóti í bága við lög þessi.
3.05 Rétt til inngöngu í aðildarfélag á hver karl og kona, sem náð hefur 18 ára aldri og skuldbindur sig til að hlíta lögum félagsins. Aldursákvæði þetta tekur ekki til aðildarfélaga ungs fólks sem aðild á að Samfylkingunni. Réttur til inngöngu í aðildarfélag er háður því að umsækjandi sé ekki félagi í öðrum stjórnmálaflokkum.
3.06 Aðildarfélagi er heimilt að takmarka aðild að félaginu við búsetu innan þess sveitarfélags sem félagið starfar í.
3.07 Skriflegri umsókn um inngöngu má beina til aðalskrifstofu Samfylkingarinnar sem þá skipar umsækjanda í félag eftir búsetu hans, komi ekki fram ósk um annað. Þó skulu einstaklingar undir 35 ára aldri vera skráðir í Unga jafnaðarmenn eftir búsetu þeirra komi ekki fram ósk um annað. Tilkynning hér að lútandi skal senda viðkomandi aðildarfélagi þegar í stað.
3.08 Enginn getur verið aðalfélagi nema í einu aðildarfélagi. Um réttindi og skyldur aukafélaga fer skv. lögum viðkomandi aðildarfélaga.
3.09 Hvert aðildarfélag skal árlega afhenda framkvæmdastjórn skrá yfir alla félaga þar sem getið er auk nafns, a.m.k. kennitölu og heimilisfangs og netfangs ef því er til að dreifa og auk þess hvort viðkomandi sé aðal- eða aukafélagi og hvenær hann gekk í félagið. Framkvæmdastjórn ákveður í hvaða formi skráin skal afhent. Á landsfundarári skal slík skrá afhent a.m.k. einum mánuði fyrir boðaðan landsfund.
3.10 Hvert aðildarfélag skal tilgreina í lögum sínum hvenær skuli halda aðalfund svo og dagskrá hans. Í lögum skal tilgreint hvernig standa skuli að kjöri stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna. Á aðalfundi skulu og lagðir fram reikningar félagsins fyrir næstliðið ár og teknar ákvarðanir um önnur þau mál er fyrir fundinum liggja. Reikningsár aðildarfélags er almanaksárið. Í lögum aðildarfélags skal jafnframt tilgreina hvernig standa skuli að fundarboði svo fundur teljist löglegur og einnig hvernig fara skuli með félagsslit.
3.11 Hvert aðildarfélag hefur rétt til að skjóta öllum ágreiningsmálum sem rísa kunna í félaginu og varða starfsemi þess og lög til flokksstjórnar. Úrskurður flokksstjórnar er bindandi fyrir báða eða alla aðila en áfrýja má þeim úrskurði til landsfundar.
3.12 Rísi ágreiningur milli tveggja eða fleiri aðildarfélaga, sem varðar starfsemi þeirra og samskipti innan Samfylkingarinnar og sem þeim tekst ekki að jafna skal honum áfrýjað til flokksstjórnar sem sker úr deilunni eins fljótt og tök eru á eftir að leitað hefur verið sátta með aðilum. Úrskurður flokksstjórnar er bindandi fyrir báða eða alla aðila, en áfrýja má þeim úrskurði til landsfundar.
3.13 Gætt skal jafnræðis með aðilum við meðferð deilumála og skal þeim gefinn kostur á því, að koma að sjónarmiðum sínum innan hæfilegra fresta áður en deila er tekin til úrskurðar.
3.14 Úrsögn úr flokknum eða einstökum aðildarfélögum skal vera skrifleg. Úrsögn má beina til aðalskrifstofu Samfylkingarinnar, sem tilkynnir hana þá þegar til viðkomandi aðildarfélags.
3.15 Tillögu um að aðildarfélag segi sig úr Samfylkingunni eða hætti störfum innan hennar má einungis taka til afgreiðslu ef hún er skriflega fram borin við stjórn félagsins af eigi færri en 1/4 hluta fullgildra aðalfélaga. Hljóti tillagan samþykki tveggja löglega boðaðra félagsfunda sem haldnir hafa verið með tveggja vikna millibili skal um hana höfð allsherjaratkvæðagreiðsla. Tillagan telst samþykkt ef 2/3 hlutar greiddra atkvæða eru með henni.
3.16 Bækur, sjóðir og aðrar eignir félags, þær sem til ráðstöfunar eru eftir að skuldir hafa að fullu verið gerðar upp, skulu er félag segir sig úr Samfylkingunni eða hættir störfum falla til Samfylkingarinnar og ber að afhenda þær skrifstofu hennar.
4.01 Landsfund Samfylkingarinnar skal halda annað hvert ár á þeim stað er framkvæmdastjórn ákveður.4.02 Landsfund skal halda annað hvort á tímabilinu 15. september til 30. nóvember eða á tímabilinu frá 1. mars til 15. júní og skal hann standa í a.m.k. 2 almanaksdaga. Framkvæmdastjórn flokksins hefur heimild til þess að boða landsfund á öðrum tíma ársins ef alþingiskosningar ber brátt að, t.d. vegna þingsrofs. Landsfundur er lögmætur ef hann er löglega boðaður.
4.03 Afl atkvæða ræður niðurstöðu mála á landsfundi. Í starfsnefndum á landsfundi, eins og í öðru starfi Samfylkingarinnar skal þó leitast við að ná sameiginlegri niðurstöðu um helstu mál án atkvæðagreiðslu.
4.04 Allir félagar í Samfylkingunni og aðildarfélögum hennar eiga sæti á landsfundum með málfrelsi og tillögurétti. Kjörgengi miðast við 18 ára aldur. Um atkvæðisrétt fer samkvæmt 5. kafla.
4.05 Landsfund skal boða bréflega með minnst sex vikna fyrirvara til allra aðildarfélaga flokksins og með a.m.k. einni almennri auglýsingu í útbreiddum fjölmiðli.
4.06 Þó er heimilt að boða til aukalandsfundar með skemmri fyrirvara, ef sérstakar og óvenjulegar aðstæður eru fyrir hendi að dómi flokks- eða framkvæmdastjórnar eða ef meirihluti aðildarfélaga krefst þess skriflega.
4.07 Sé boðað til aukalandsfundar með hinum skemmri fyrirvara er óheimilt að láta fara fram kosningar til æðstu stjórna eða afgreiða lagabreytingar.
4.08 Landsfundur samþykkir fundarsköp og skal fundum stjórnað samkvæmt þeim. Ritari flokksins og ritari framkvæmdastjórnar hafa umsjón með ritun fundargerða landsfunda og bera ábyrgð á frágangi þeirra.
4.09 Framkvæmdastjórn undirbýr dagskrá landsfundar og gerir tillögur um embættis menn fundarins.
4.10 Landsfund skal halda í heyranda hljóði. Þó skal umræða um ákveðin mál fara fram fyrir luktum dyrum, ef tillaga þess efnis hlýtur meira en helming greiddra atkvæða.
4.11 Atkvæðisbærir fulltrúar á landsfundi skulu skipta með sér ferðakostnaði sínum til og frá landsfundi, þannig að allir greiði sem næst sömu fjárhæð í beinan ferðakostnað hvar sem þeir eru búsettir á landinu.
4.12 Fulltrúar á landsfundi eða félög sem þeir eru fulltrúar fyrir skulu greiða kostnað við landsfund. Framkvæmdastjórn ákveður upphæð greiðslu og skal hún innt af hendi í síðasta lagi við upphaf landsfundar.
5. kafli Fulltrúar á landsfundi og val þeirra
xGorgeous Female Gorgeous Gorgeous Samfylkingin » Lög Sam